Fréttir
Þarna var verið að ná í bíl sem var með sprungið á tveimur dekkjum og á sama hálftíma valt bíll á veginum og því þurfti báða kranabíla KM þjónustunnar í Búðardal á svæðið. Á svæðinu voru því tveir sjúkrabílar, lögreglubíll og tveir kranabílar. Dráttarbíll hefur í um þrjátíu skipti á þessu ári verið kallaður til. Lögregla segir að milli 15 og 20 manns hafi þurft að leita sér læknishjálpar eftir umferðaróhöpp á veginum. Ljósm. kik.

Tugir óhappa og mikil umferð um illa farinn Skógarstrandarveg

Loading...