




|
www.akranes.is, 24. maí 2013 Garðasel fyrirmyndarstofnun ársins |
|
Leikskólinn Garðasel var valin fyrirmyndarstofnun á vegum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar ,,Stofnun ársins - Borg og Bær" í flokki minni stofnana. Leikskólinn Vallarsel var í öðru sæti. Í flokki stærri stofnana voru Faxaflóahafnir í fyrsta sæti og Heilbrigðisstofnun Vesturlands í öðru sæti. Stærsti hópur félagsmanna Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar starfar hjá Reykjavíkurborg en auk þess starfa félagsmenn hjá fyrirtækjum Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstað, Seltjarnarneskaupstað, ríki og fleirum. Val á Stofnun ársins og Fyrirtæki ársins er samvinnuverkefni SFR stéttarfélags og VR. St.Rv. bætist nú í hópinn en auk þess tekur Starfsmannaskrifstofa fjármálaráðuneytisins þátt í könnuninni fyrir alla starfsmenn. Könnunin er ein stærsta reglulega vinnumarkaðskönnun sem framkvæmd er hér á landi og gefur mikilvægar upplýsingar um stöðu starfsmanna á vinnumarkaði. Landmælingar Íslands urðu... |
|
|
|
www.grundarfjordur.is, 24. maí 2013 Fjölmennur og málefnalegur íbúafundur |
|
Grundfirðingar mættu vel á íbúafund sem haldinn var þriðjudagskvöldið 14. maí, en um 50 manns sátu fundinn. Þar voru kynnt helstu mál og urðu síðan umræður í kjölfarið. Á þessu kjörtímabili hefur bæjarstjórn haldið íbúafundi vor og haust og var fundurinn sá fjölmennasti til þessa. Farið var yfir fjármál og stöðu, mótun skólastefnu, breytingar í Sögumiðstöð, ráðningu menningar- og markaðsfulltrúa og skipulags- og byggingarfulltrúa, en síðarnefnda starfið er í samstarfi við Stykkishólm. Einnig var greint frá ágætum árangri af sorpflokkun, sílardauða í Kolagrafafirði og fjallað um framkvæmdir ársins. Talsverð umræða varð um málefni Sögumiðstöðvar og Heilsugæslu. Spurt var um ýmislegt varðandi ferðaþjónustu og rætt um vatns- og sorpgjöld, svo eitthvað sé nefnt. Umræður voru málefnalegar og komu fram ýmsar ábendingar og hugmyndir. Glærur frá fundinum. Stutt samantekt úr umræðum. |
|
|
www.akranes.is, 24. maí 2013 Fjölbreyttir viðburðir í sumar |
|
Dagleg leiðsögn um Akranesvita, tónleikaröð, ljósmyndasýning, frisbígolf, þríþraut með sjósundi, Langasandshlaup, hjólaferðir, vikulegar göngur á Akrafjall, leiksýning um landnámið er á meðal þeirra verkefna sem Akraneskaupstaður styrkir til að glæða bæinn lífi í sumar. Í vor var auglýst eftir umsóknum um styrki til afþreyingar og viðburða á Akranesi í sumar. Úthlutað verður 2.1 milljónum króna en hámarks styrkupphæð er 300 þúsund fyrir hvert verkefni.Ákveðið var að leggja áherslu á að verkefnin myndu laða ferðamenn til Akraness, bæði innlenda og erlenda auk þess sem Akurnesingar og nærsveitamenn myndu að sjálfsögðu njóta góðs af. Umsóknir voru 22 talsins, samtals að upphæð 4.130 þúsund en þar af voru sex umsóknir sem nefndu ekki umsóknarupphæð. Ákveðið var að veita tólf verkefnum styrk, samtals að upphæð 2.1 milljón króna. Þessi verkefni munu vonandi veita skemmtilegan og litríkan blæ á bæjarbraginn |
|
|
www.dalabyggd.is, 24. maí 2013 Íbúakönnun 2013 |
|
Samtök sveitafélaga á Vesturlandi standa nú fyrir íbúakönnun á Vesturlandi, eins og gert hefur verið á þriggja ára fresti frá árinu 2004. Í þessum könnunum hafa íbúar verið spurðir um ýmis álitamál sem tengjast þjónustu og aðstæðum þar sem þeir búa. Niðurstöður og upplýsingar könnunarinnar hafa reynst mikilvægar varðandi hvað betur mætti fara varðandi þjónustu við íbúa. Að þessu sinni verður könnunin í fyrsta skipti rafræn og sparast þannig tilkostnaður við prentun og annað því tengt. Markmið er að fá fleiri svör en í fyrri könnunum, þannig að unnt verði að segja til um afstöðu íbúanna í hverju sveitarfélagi. En fram til þessa hefur eingöngu verið hægt að skipta niðurstöðum upp í fjögur svæði. Íbúar Dalabyggðar geta tekið þátt í íbúakönnuninni með að fara inn á slóðina www.ssv.is/ibuakonnun. Íbúakönnun 2013 |
|
|
www.snb.is, 23. maí 2013 Vatnslaust |
|
Lokað verður fyrir vatn á Hellissandi og Rifi í dag, fimmtudaginn 23. maí, frá kl. 19.00 og eitthvað fram eftir kvöldi. Vatnsveita Snæfellsbæjar |
|
|
www.grundarfjordur.is, 23. maí 2013 Blóðsöfnun |
|
Blóðbankabíllinn verður við Samkaup Úrval miðvikudaginn 29. maí. kl.10-13. Sjá auglýsingu hér. |
|
|
www.borgarbyggd.is, 23. maí 2013 Ársreikningur Borgarbyggðar |
![]() |
|
|
www.dalabyggd.is, 23. maí 2013 Héraðsbókasafn - sumaropnun |
![]() |
|
|
www.dalabyggd.is, 23. maí 2013 Bátadagar á Breiðafirði |
![]() |
|
|
www.borgarbyggd.is, 23. maí 2013 Yngstu nemendurnir fá öryggisvesti |
![]() |
|
| 2013 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2012 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2011 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2010 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2009 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2008 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2007 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2006 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2005 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2004 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2003 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2002 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2001 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2000 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
|
|
|
Samstarfsaðilar
|