Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 00:39 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Skessuhorn, 18. júní 2013

Fyrsta langreyðurin á nýhafinni hvalvertíð kom á land í Hvalfirði um fjögurleytið í dag. Það var Hvalur 8 sem kom þá með tarf sem reyndir menn í hvalstöðinni sögðu vera í stærri kantinum. Dýrið fékkst djúpt út af Faxaflóa í um 160 sjómílna fjarlægð frá landi. Leiðindaveður hefur verið á miðunum síðustu daga og frekar lítið skyggni. Hinn hvalbáturinn, Hvalur 9, heldur nú sjó á miðunum og bíður betra veðurs. Fjölmenni var á bryggjunni við Hvalstöðina í Hvalfirði þegar hvalbáturinn lagðist að bryggju og bar þar mest á fjölmiðlafólki. Upp í brekkunni, utan girðingar, var svo hópur fólks að fylgjast með og meðal þeirra voru nokkrir með mótmælaborða.

 

 

 

 

Skessuhorn, 18. júní 2013

Þórður Þórðarson hefur að eigin ósk látið af störfum sem þjálfari hjá Knattspyrnufélagi ÍA. Þetta kemur fram á heimasíðu félagins að afloknum fundi með Þórði sem var að ljúka nú rétt í þessu. Hann tók við liðinu í erfiðri stöðu í fyrstu deild árið 2009, stýrði því til sigurs í fyrstu deild árið 2011 og náði framúrskarandi árangri í Pepsi deildinni árið 2012. Á tímabilinu 2013 hefur verið á brattann að sækja og var það mat Þórðar að rétt væri að nýr þjálfari kæmi að verkefninu. Á þessum tímapunkti liggur ekki fyrir hver taki við þjálfun meistaraflokks karla af Þórði, en liðið er nú í 10. sæti deildarinnar með þrjú stig af 21 mögulegu.

Nokkur nöfn eru í sigtinu vegna ráðningar þjálfara en viðræður ekki hafnar við neinn. Dean Martin mun stýra æfingu liðsins í dag.

 

 

 

 

Skessuhorn, 18. júní 2013

Í þessari viku kemur Skessuhorn út fimmtudaginn 20. júní í stað miðvikudags eins og venjulega. Af þeim sökum verður lokavinnsla blaðsins á morgun, miðvikudag. Hægt er að panta auglýsingar til hádegis á morgun í síma 433-5500 eða á netfangið palina@skessuhorn.is Þeir sem þurfa að senda inn fréttatilkynningar eða greinar til birtingar í blaði vikunnar eru beðnir að gera það í dag, þriðjudag.

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn, 18. júní 2013

Frá og með morgundeginum, 19. júní, er lokað fyrir strandveiðar á A-svæði og dagurinn í dag því sá síðasti þennan mánuð. A-svæði nær frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps. Að deginum í dag ótöldum höfðu 228 bátar landað alls 1.301 sinnum í júní og aflinn var tæp 717 tonn. Í júní 2012 lönduðu aftur á móti 250 bátar. Strandveiðin hefst aftur á A svæði mánudaginn 1. júlí. Á D svæði, frá Höfn, suður um og að Eyja- og Miklaholtshreppi er nú í dag einungis búið að veiða 215 af 525 tonnum sem leyfilegt er að veiða. Við þann kvóta strandveiðibátanna bætist rúmlega 200 tonna óveiddur kvóti frá því í maí.

 

 

 

 

Skessuhorn, 18. júní 2013

Kvartettinn Hinir síungu var tilnefndur sem bæjarlistamenn Snæfellsbæjar á 17. júní hátíðarhöldum í Ólafsvík á mánudaginn. Kvartettinn skipa þeir Stefán Jóhann Sigurðsson, Vigfús Kr. Vigfússon, Gunnar Hjartarson og Bjarni Ólafsson. Stjórnandi kvartettsins og undirleikari er Valentina Kay. Hinir síungu var stofnaður árið 2006 af fjórmenningunum sem allir höfðu verið meðlimir kirkjukórs bæjarins til fjölda ára. Hópurinn hefur komið fram við hin ýmsu tækifæri og sungið fyrir unga sem aldna um allt land sem og utan landssteinanna. Hinir síungu hafa auk þess gefið út tvo geisladiska og er sá þriðji í vinnslu sem væntanlega kemur út í haust. Hópurinn hefur á söngskrá sinni klassísk íslensk dægurlög og hefur einsett sér að syngja ávallt á íslensku.

 

 

 

 

Skessuhorn, 18. júní 2013

Sigurbjörg Þrastardóttir rithöfundur var tilnefnd bæjarlistamaður Akraneskaupstaðar 2013 við athöfn sem fór fram í tengslum við 17. júní hátíðarhöld á Akranesi á mánudaginn. Sigurbjörg fæddist á Akranesi árið 1973 og ólst þar upp. Hún lauk BA prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands árið 1997 og námsbraut í hagnýtri fjölmiðlun árið 1998. Hún starfaði sem blaðamaður á Morgunblaðinu árin 1998 til 2006 og pistlahöfundur í Lesbók blaðsins árin 2002 – 2006. Sigurbjörg var í stjórn Rithöfundasambands Íslands frá 2003 til 2011 og er í stjórn PEN klúbbsins á Íslandi.

 

 

 

 
Vefpóstur
Á döfinni
Sun
Mán
Þri
Mið
Fim
Fös
Lau
26
1




23
26

5

Framundan
Akranes: Í dag
Leikskólinn Klettaborg, Borgarnesi: Á morgun
Akranes: 21. 6 2013
Akranes: 21. 6 2013
Akranes: 22. 6 2013
Borgarbyggð: 22. 6 2013
Borgarbyggð: 22. 6 2013
Dalabyggð: 22. 6 2013
kl. 14:00
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 00:30  A 8  8°C
Akrafjall 00:20  ANA 3  8°C
Hafnarfjall 00:30  ASA 6  9°C
Vatnaleið 00:30  SA 2  7°C
Hraunsmúli 00:30  ASA 3  9°C
Fróðárheiði 00:20  SA 8  5°C
Brattabr. 00:20  S 3  5°C
Holtav.h. 00:30  SSV 4  5°C
Laxárdalsh. 00:20  SSV 2  7°C
Svínad. 00:20  S 2  6°C
 
 
Hús óskast
Óska eftir litlu, gömlu húsi eða sumarhúsi, til flutnings. Brynja s. 6616862
 
Óska eftir 4-5 herb á Akranesi
Óska eftir íbúð eða húsi í lagntímaleigu á Akranesi. Reglubundnum greiðslum heitið.
Sími 6969 556
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent