Kæru íbúar Vesturlands og aðrir landsmenn,
Nú stefnir í metþátttöku á Unglingalandsmót UMFÍ sem verður haldið á Selfossi um verslunarmannahelgina. Það er góðs viti að foreldrar og ungt fólk þessa lands komi saman án vímuefna og skemmti sér saman í keppni og leik. Í hinum hraða nútímaheimi er æði margt sem glepur unga sál, á hverju horni bíða sölumenn dauðans eftir að hremma næstu bráð. Því er dýrmæt hver stund, hver helgi, sem foreldrar verja með börnunum sínum.
Unglingalandsmótin eru sannarlega mótvægi við hefðbundnar útihátíðir og unglingar að 18 ára aldri hafa þar keppnisrétt. Hinn sanni ungmennafélagsandi er nánast áþreifanlegur, þar sem allir geta tekið þátt hvaðan af landinu sem þeir koma og við hvaða aðstæður þeir búa. Einnig er vel hugsað um íþróttir fatlaðra. Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi á mótinu, því skemmtanir og kvöldvökur eru stöðugt alla helgina. Veðurspáin er mjög góð og allar aðstæður í heimsklassa.
|