Gunnar Sigurðsson, bæjarfulltrúi, ritar grein í síðasta Skessuhorn sem hann kallar „Vanstillt viðbrögð bæjarstjóra“ og er þar með upplýsingar varðandi fjármál Akraneskaupstaðar sem ég get ekki stillt mig um að gera svolitlar athugasemdir við þó að ég geri ráð fyrir að Gunnari þyki það sýna einhvers konar vanstillingu af minni hálfu. Í þessari grein er Gunnar enn við sama heygarðshornið og lætur sjálfum sér og lesendum Skessuhorns nægja svona u.þ.b. hálfsannleikann og varla það. Gunnar lætur þess nefnilega alveg ógetið í grein sinni að bréf það sem eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga sendi Akraneskaupstað nýlega byggist á nýsettum lögum og reglum varðandi fjármál sveitarfélaga og því er lítil furða að sveitarfélög og þ.m.t. Akraneskaupstaður hafi ekki fengið slíkt bréf áður. Þá lætur Gunnar þess einnig ógetið að eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hafa hátt í þrjátíu sveitarfélög fengið svona bréf frá eftirlitsnefndinni vegna skulda- eða rekstrarstöðu, m.a. Reykjavíkurborg. Að þessu sögðu vil ég þó taka fram að ég er algjörlega sammála Gunnari um að fullt tilefni er til að taka þetta bréf eftirlitsnefndar mjög alvarlega og fjármál Akraneskaupstaðar mjög föstum tökum. Í því sambandi breytir engu þó að fjölmörg önnur sveitarfélög séu í sömu stöðu að því leyti.
|