Prentað fimmtudaginn 20. júní kl. 10:57 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
25. júlí 2012 12:01

Hildur Karen Aðalsteinsdóttir

Frábær valkostur um Verslunarmannahelgina

Á síðustu árum hefur þeim Akurnesingum sem taka þátt í unglingalandsmóti UMFÍ fjölgað mikið enda er þátttaka á mótinu ekki bundin félagsaðild í ungmennafélagi heldur hafa öll ungmenni á aldrinum 11-18 ára þátttökurétt. Skagamenn geta þó gert enn betur og verður tækifæri til þess á 15. unglingalandsmót UMFÍ sem haldið verður á Selfossi um verslunarmannahelgina. 

 

Unglingalandsmótin eru vímuefnalaus íþrótta- og fjölskylduhátíð sem haldin eru árlega um þessa miklu ferðahelgi og er góður kostur fyrir þá sem velja heilbrigt og vímuefnalaust umhverfi samhliða því að taka þátt í skemmtilegri íþróttakeppni þar sem andi ungmennafélaganna svífur yfir vötnunum. Í ár er keppt í dansi, fimleikum, starfsíþróttum, frjálsum íþróttum, taekwondo, glímu, golfi, hestaíþróttum, motocross, íþróttum fatlaðra, knattspyrnu, körfubolta, skák og sundi. Greitt er eitt mótsgjald, kr. 6.000 og fylgir því gjaldi keppnisréttur í öllum greinum og aðgangur að tjaldsvæðum fyrir fjölskyldu keppanda. Á Selfossi er öll aðstaða hin glæsilegasta og er íþróttaleikvangurinn vel staðsettur í hjarta bæjarins. Sundlaug og íþróttahús er þar rétt við hliðina og öll önnur íþróttamannvirki í næsta nágrenni. Tjaldstæði keppenda er í göngufæri við keppnissvæðin og er hverju félagi úthlutað ákveðnu svæði í samræmi við skráningar.

 

En unglingalandsmótð eru miklu meira en bara íþróttakeppni því alla helgina er fjölbreytt skemmtidagskrá í boði fyrir alla fjölskylduna, kvöldvökur og síðan flugeldasýning á sunnudagskvöldið. Mótið er því kjörinn vettvangur fyrir fjölskylduna til að skemmta sér saman, hitta vini og kunningja frá öðrum félögum og stofna til nýrra vináttubanda sem geta haldið lengi. Síðasti skráningardagur er 29. júlí og þeir sem hafa áhuga á að fá nánari upplýsingar um mótið eða skrá sig geta skoðað heimasíðu Unglingalandsmótsins www.ulm.is.

 

Fimmtudaginn 26. júlí milli kl. 20:00 – 21:00 verða fulltrúar ÍA og Ungmennafélagsins Skipaskaga til skrafs og ráðagerða um mótið í Hátíðarsal á Jaðarsbökkum og eru þeir sem hafa áhuga á að fræðast meira um unglingalandsmótin eða fá aðstoð við skráningu hvattir til að líta við í kaffispjall.

 

Sjáumst öll á Selfossi um verslunarmannahelgina,

Hildur Karen Aðalsteinsdóttir

 


Til baka


yfirlit greina

 
Vefpóstur
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 10:40  V 2  12°C
Akrafjall 10:40  ANA 8  12°C
Hafnarfjall 10:40  NA 7  11°C
Vatnaleið 10:40  NV 6  8°C
Hraunsmúli 10:40  NNA 5  12°C
Fróðárheiði 10:40  N 4  9°C
Brattabr. 10:40  NNA 7  7°C
Holtav.h. 10:40  N 7  5°C
Laxárdalsh. 10:40  NNA 9  8°C
Svínad. 10:40  NNV 4  8°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
Guðmundur Páll Jónsson og Sveinn Kristinsson: „Það eru sólarlitlir dagar“
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent