Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 02:58 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
18. júlí 2012 19:01

Gunnar Sigurðsson

Vanstillt viðbrögð bæjarstjóra

Greinarkorn mitt í Skessuhorni um mikla framúrkeyrslu meirihluta bæjarstjórnar Akraness í risnukostnaði og úrbótatillaga mín í bæjarráði urðu Árna Múla Jónassyni bæjarstjóra tilefni til svara í sama blaði. Viðbrögð bæjarstjóra eru afar vanstillt svo ekki sé meira sagt. Grein hans minnir óneitanlega á að sannleikanum verður hver sárreiðastur.

 

 

Hvergi í grein minni gaf ég til kynna að framúrkeyrsla í risnukostnaði væri ný bóla eða að met hefði verið slegið í risnukostnaði. Tölur Árna Múla sýna þó svo ekki verði um villst að framúrkeyrsla núverandi meirihluta er sú mesta á seinni árum í rekstri bæjarfélagsins. Meirihluti þessi lofaði bæjarbúum m.a. ábyrgri fjármálastjórn. Með ólund sinni er Árni Múli um leið að senda bæjarfulltrúum meirihlutans kaldar kveðjur því eins og fram hefur komið samþykktu þeir útbótatillögu mína samhljóða á fundi bæjarráðs.

 

Sá grunur læðist að mér að vanstillingu bæjarstjóra megi að hluta til rekja til þeirrar staðreyndar að í fyrsta skipti í langan tíma hefur eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga gert athugasemdir við rekstur bæjarsjóðs. Ekki vegna skuldastöðu heldur vegna taprekstrar. Viðvarandi taprekstur er grafalvarlegt mál eins og bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa margoft bent á. Nú verða þau lausatök sem eru á rekstri sveitarfélagsins ekki rakin til veiks meirihluta bæjarstjórnar í fulltrúafjölda talið en hann skipa sjö bæjarfulltrúar af níu. Meirihlutann leiða tveir af reynslumestu sveitarstjórnarmönnum landsins Sveinn Kristinsson og Guðmundur Páll Jónsson þó þeir hafi nú ekki verið þeir sýnilegustu frá síðustu kosningum.

 

Vanstillt viðbrögð bæjarstjóra koma ekki á óvart en leysa engin vanda. Viðvarandi hallarekstur sem staðfestur er í uppgjöri fyrstu fimm mánaða þessa árs verður ekki leystur með sjálfumgleði, skrúðmælgi eða langhundum í rituðu máli. Hann verður aðeins leystur með því að meirihluti bæjarstjórnar með bæjarstjórann í broddi fylkingar opni augun og takist á við það verkefni sem hann var kosinn til.

 

Gunnar Sigurðsson bæjarfulltrúi


Til baka


yfirlit greina

 
Vefpóstur
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 02:50  A 6  8°C
Akrafjall 02:40  ANA 6  8°C
Hafnarfjall 02:50  SA 3  9°C
Vatnaleið 02:50  A 1  6°C
Hraunsmúli 02:50  ANA 2  8°C
Fróðárheiði 02:40  A 4  5°C
Brattabr. 02:40  SSA 1  5°C
Holtav.h. 02:50  NNV 2  5°C
Laxárdalsh. 02:40  Logn 7  76%°C
Svínad. 02:40  A 1  6°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent