Prentað fimmtudaginn 23. maí kl. 16:26 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
28. júní 2012 17:01

Sigurborg Daðadóttir

Heldur þann versta en þann næstbesta – Dauðu atkvæðin skipta máli

„Heldur þann versta en þann næstbesta,“ sagði Snæfríður Íslandssól þegar faðir hennar spurði hana 17 ára gamla hvers vegna hún vildi ekki dómkirkjuprestinn. Flestir Íslendingar þekkja sögu Snæfríðar í Íslandsklukku Halldórs Laxness, en til upprifjunar er söguþráðurinn í grófum dráttum þessi: Snæfríður er ástfangin af Árna (Arnasi Arnæus) og fylgir honum um landið þegar hann safnar handritum. Árni er sjálfhverfur og heltekinn af handritunum. Snæfríður giftist fyllibyttunni Magnúsi í Bræðratungu, þrátt fyrir að elska Árna.

Nú þegar styttist í forsetakosningar má án hroka segja að valið standi á milli Þóru og Ólafs Ragnars. Á framboðsfundi Ara Trausta á vinnustað mínum fyrr í mánuðinum, þar sem hann í ræðu sinni fann Ólafi  Ragnari allt til foráttu, spurði ég hvort hann hefði hugleitt að draga framboð sitt til baka þegar nær drægi kosningadegi og nokkuð ljóst væri að aðeins einn hefði  raunhæfan möguleika á að fella Ólaf Ragnar.  Svarið var „nei“ og rökstuddi hann svarið með því að segja að það væri lýðræðislegur réttur hvers og eins að kjósa þann sem honum hugnast best og treysti best til að verða góður forseti. Ein samstarfskona mín tjáði sig strax í kjölfarið og sagði að þá ykjust líkurnar á að Ólafur Ragnar næði endurkjöri og í framboðsræðu hans hefði komið skýrt fram að Ólafur Ragnar væri versti  kosturinn. Ari Trausti yppti öxlum, sagði að svo yrði þá bara að vera. Það var ekki laust við að ég hafi séð sjálfhverfan handritasafnara fyrir mér á þeirri stundu.

Ólafur Ragnar Grímsson er versti kosturinn af frambjóðendunum sex, að mínu mati og þar með er ég sammála Ara Trausta. Það má færa fyrir því rök að Ólafur Ragnar sé „útrásar fyllibytta“ en ekki alkahól fyllibytta eins og Magnús í Bræðratungu. Sem forseti Íslands, skrifaði Ólafur Ragnar Grímsson meðmælabréf fyrir „útrásarvíkingana“, mærði þá í riti og töluðu máli. Til kosta þeirra nefndi hann vinnusiðferði, áhættusækni, litla skriffinnsku, skjótar ákvarðanatökur í litlum hópum ofl.  (Skýrsla rannsóknanefndar Alþingis, 8. bindi). Punktinn yfir i-ið  setti Ólafur Ragnar þegar hann gerðist nokkurs konar umboðsmaður Kaupþings við kaup Al Thani í Katar á hlutabréfum bankans, sem við vitum í dag að var svívirðilegt svindl. Ólafur Ragnar hélt ótal hádegisverðarboð á Bessastöðum fyrir „útrásarvíkingana“ þegar þeir voru að koma „bólu viðskiptum“ á koppinn. Hann baðaði sig í opnunarveislum „útrásarvíkinganna“ út um allan heim og ferðaðist í einkaþotum þeirra. Þetta eru allt staðreyndir og sýnir spillingu og siðblindu Ólafs Ragnars í aðdraganda hrunsins. Hann hefur ekki siðferði til að stíga til hliðar, því þarf þjóðin að gefa honum frí og þakka pent fyrir „gamla Ísland“, horfa fram á veginn og byggja upp nýtt og betra samfélag með samhug og heiðarleika að leiðarljósi.

Á þeim 16 árum sem Ólafur Ragnar hefur verið forseti hefur hann aldrei þegið boð Samtakanna 78 um að vera viðstaddur fögnuði vegna merkra áfanga í réttarbótum samkynhneigðra. Vigdís Finnbogadóttir hefur ævinlega þegið boð og samfagnað sem og tugþúsundir Íslendinga á hverju ári í „Gleðigöngunni“. Réttarbætur minnihlutahópa á Íslandi eru ekki nógu fínar fyrir forsetann Ólaf Ragnar, það er líklega fínna að borða gullflögur með „útrásarvíkingum“.

Með vísan til þess sem að framan er skrifað hvet ég kjósendur til að hugleiða afleiðingar atkvæða sinna. Allt bendir til þess að atkvæði greidd öðrum en Ólafi Ragnari og Þóru teljast ekki með í úrslitunum. Það er staðreynd vegna þess að aðeins ein umferð er í forsetakosningum hér á landi, því miður. Auðvitað ætti þjóðkjörinn forseti ekki að vera kjörinn nema að lágmarki með 51% greiddra atkvæða, en því miður eru lögin ekki þannig í dag.

Það er skiljanlegt að Snæfríður, 17 ára unglingurinn, hafi í bræði valið þann versta fyrst hún fékk ekki þann besta. Ég ætla fullþroskuðu fólki að hugleiða málið í kjörklefanum og taka yfirvegaða ákvörðun,  af skynsemi og hafna siðblindu Ólafs Ragnars Grímssonar.

 

Reykjavík, 25. júní 2012

Sigurborg Daðadóttir

dýralæknir

 

 

 

 


Til baka


yfirlit greina

 
Vefpóstur
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 16:00  A 8  7°C
Akrafjall 15:50  ASA 4  8°C
Hafnarfjall 16:00  SA 11  9°C
Vatnaleið 16:00  SA 12  5°C
Hraunsmúli 16:00  A 7  7°C
Fróðárheiði 15:50  ANA 6  4°C
Brattabr. 15:50  S 10  3°C
Holtav.h. 16:00  SSV 13  4°C
Laxárdalsh. 15:50  SV 2  5°C
Svínad. 15:50  S 5  4°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent