




13. júní 2012 13:00 |
Hulda Hrönn Sigurðardóttir |
Sumir eru jafnari en aðrir |
Það er stór áfangi að útskrifast úr grunnskóla. Tíu ára nám að baki og framhaldsskólinn á næsta leyti. Skólaslit eru hátíðleg stund. Nemendur, foreldrar og aðrir gestir mæta prúðbúnir og útskriftarnemendur kveðja skólann sinn með því að taka við vitnisburði, kveðja kennara sína með virktum, taka við verðlaunum fyrir góðan árangur, flytja tónlistaratriði og fulltrúi þeirra flytur ávarp. Venjan er í flestum skólum, hvort sem þeir eru á grunn-, framhalds- eða háskólastigi að lesa upp nafn hvers nemanda þegar hann tekur við sínu prófskírteini. Þessar venjur hafa verið viðhafðar við skólaslit Grunnskóla Borgarfjarðar, og forvera hans, mörg undanfarin ár. En þetta árið var ákveðið að breytingar yrðu á hefðum og skólaslit tveggja starfsstöðva af þremur yrðu færð úr Reykholtskirkju, út á tún í skjólbeltareit á Hvanneyri. Í frétt í Skessuhorni sl. miðvikudag er þess getið að þetta hafi verið gert vegna veðurs og að hátíðleikinn hafi engu að síður haldið sér. Þetta er einfaldlega ekki rétt. Skólastjóri tilkynnti í tölvupósti til foreldra 21. maí sl. að þessar viðamiklu breytingar yrðu gerðar á skólaslitum tveggja starfsstöðva af þremur. Fyrirhugaðar breytingar voru hvorki ræddar við fulltrúa nemenda né foreldra. Aðilar úr hópi foreldra, kennara og nemenda reyndu að fá skólastjóra til að endurskoða sína ákvörðun, og haga skólaslitum þannig að allar starfsstöðvar hefðu sameiginleg skólaslit, eða að hver starfsstöð hefði sín skólaslit. Þeim varð ekki að ósk sinni. Þriðja starfsstöð skólans, að Varmalandi, hélt hins vegar sín hefðbundnu skólaslit í Þinghamri, eins og verið hefur undanfarin ár. Í lögum um grunnskóla 91/2008 er m.a. kveðið á um í 2. gr. að starfshættir grunnskóla skuli mótast af jafnrétti. Með þeirri ákvörðun sinni að gera viðamiklar breytingar á skólaslitum tveggja starfsstöðva, en hreyfa ekki við hefðum hjá þeirri þriðju, er skólastjóri að mismuna nemendum. Í 13. gr. laga um grunnskóla er fjallað um rétt nemenda. Þar segir meðal annars: „Nemendur eiga rétt á því að koma sjónarmiðum sínum á framfæri varðandi námsumhverfi, námstilhögun, fyrirkomulag skólastarfs og aðrar ákvarðanir sem snerta þá.“ Með því að ræða breytingu á fyrirkomulagi skólaslita ekki við nemendur má álykta að skólastjóri fari ekki að lögum. Eftir að þessar þrjár starfsstöðvar Grunnskóla Borgarfjarðar voru sameinaðar undir stjórn eins skólastjóra hefur verið stefnt að því að skólinn væri ein heild. Það að skólastjóri mismuni nemendum, er illa til þess fallið að stuðla að því að litið sé á skólann sem eina heild. Grísinn í bókinni Animal Farm eftir George Orwell sagði þegar hann var spurður um forréttindi sín og sinna: „Sumir eru jafnari en aðrir“. Slík stefna hentar ekki í skólastarfi. Ég skora á skólastjóra að endurskoða sín vinnubrögð. Nemendum Grunnskóla Borgarfjarðar óska ég velfarnaðar og vona að þeir tileinki sér jafnrétti þó það sé ekki fyrir þeim haft. Hulda Hrönn Sigurðardóttir Höfundur er foreldri þriggja barna á grunnskólaaldri
|
|
|
|
|
Samstarfsaðilar
|