Prentað föstudaginn 24. maí kl. 16:58 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
8. júní 2012 08:01

Jón Trausti Hervarsson

Hvatning í tilefni Sjómannadagsins á Akranesi

Þann þrettánda júní nk. eru liðin tuttugu ár frá því að félagar í Kiwanisklúbbnum Þyrli luku við endurgerð gamla vitans á Suðurflös og afhentu hann umsjónaraðila sem þá var Akraneshöfn og tók hafnarstjóri, sem jafnframt var bæjarstjóri, Gísli Gíslason við vitanum við hátíðlega athöfn að viðstöddu fjölmenni. Viðgerð vitans var helsta framlag Kiwanisklúbbsins Þyrils til fimmtíu ára afmælis Akraneskaupstaðar. Afmælisnefnd sem þá var skipuð af bæjaryfirvöldum hafði löngun til að lagfæra rústir vitans sem reistur var á Suðurflös árið 1918 og leitaði til Þyrilsfélaga með það í huga að dytta eitthvað að rústunum í tilefni þessa áfanga bæjarins. Við Þyrilsfélagar vorum til í það en vildum ganga alla leið og endurgera gamla vitann í sem næst upprunalegri mynd til notkunar fyrir almenning sem útsýnis- og fuglaskoðunarstað.

Um þetta náðist samkomulag við hafnarstjórn Akraneshafnar sem lagði klúbbnum til átta hundruð þúsund krónur til verksins. Í samningi, sem hafnarstjóri og forseti Þyrils undirrituðu, var skýrt tekið fram að eftir afhendingu væri viðhald vitans alfarið á hendi eiganda þ.e. Vita- og hafnamálastjórnar sem sinnti því nokkuð meðan vitinn var í umsjá Akraneshafnar.

Síðan hófust Þyrilsfélagar handa. Reisa þurfti vinnupalla við vitann svo unnt væri að gera við steypuskemmdir og mála. Smíðað var úr járni nýtt ljóshús og handrið á topppall. Tíu metra hár hringstigi var smíðaður inn í vitann, nýir gluggar settir og öryggisgler í þá. Hurðin fékkst að gjöf frá H.B.og co. Járnsmíðin, sem fór fram á verkstæði Íslenska járnblendifélagsins, tók mörg hundruð klukkutíma svo og uppsetning hlutanna í vitann. Járnverkið er í góðu lagi eftir tuttugu ár svo ekki er þörf á að endurnýja það.

Öll þessi verk önnuðust klúbbfélagar í sjálfboðavinnu. Einnig nutu þeir aðstoðar fjölda fyrirtækja hér í bæ í formi efnisafslátta og gjafa á tækjavinnu.

Við Þyrilsfélagar höfum löngum litið stoltir til gamla vitans og var það svo í þá tíð sem Akraneshöfn hafði umsjón með mannvirkinu að það var almálað einu sinni eða tvisvar og sett nýtt gler í glugga þar sem ekki dugði átta millimetra þykkt gler til að standast krafta skemmdarvarga. Eftir að Akraneshöfn gekk í samlagið Faxaflóahafnir tók Akraneskaupstaður við vitanum og hefur ekkert viðhald verið á honum í mörg, mörg ár.

En nú eru menn að vakna til viðhalds og vonandi setja yfirvöld kraft í verkið og drífa í hlutunum, eins og sagt er, en láta ekki vitann hljóta sömu örlög og aðrar minjar og á ég þar við Kútter Sigurfara, annað stórverkefni Kiwanisklúbbsins Þyrils, sem klúbburinn keypti út í Færeyjum og flutti að Byggðasafninu í Görðum og gerði þar með draum stofnanda Byggðasafnsins séra Jóns M. Guðjónssonar að veruleika. Sigurfari var lengi stolt allra en er nú að grotna niður fyrir allra augum, hlutaðeigandi yfirvöldum og ekki síst þeim sem telja sig eiga auðlindina, sem þetta skip sótti í, til mikillar hneisu. Sagt er að með skútuöld hefjist nútíma fiskveiðar Íslendinga en ekki er að sjá að þeir sem mest berja sér á brjóst og hæla sér af tæknivæddustu veiðum í heimi, beri nokkra virðingu fyrir þeirri miklu byltingu sem varð á fiskveiðum Íslendinga með tilkomu kútteranna. Ef til vill verður það sama uppi á teningnum með alla tæknivæðinguna sem nú er í sjávarútvegi, að enginn muni eða vilji minnast hennar að verðleikum eftir hundrað ár sakir fjárskorts og hirðuleysis. 

 

Jón Trausti Hervarsson

Kiwaniskl. Þyrli.

 

 


Til baka


yfirlit greina

 
Vefpóstur
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 16:40  ASA 8  9°C
Akrafjall 16:40  ASA 5  9°C
Hafnarfjall 16:40  ASA 6  11°C
Vatnaleið 16:40  S 8  7°C
Hraunsmúli 16:50  SSA 6  8°C
Fróðárheiði 16:40  ASA 10  6°C
Brattabr. 16:40  S 11  9°C
Holtav.h. 16:40  N 3  5°C
Laxárdalsh. 16:40  ANA 5  7°C
Svínad. 16:50  ANA 5  8°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent