“Nafnið Faxaborg er vel þekkt um allt land, langt út fyrir raðir hestamanna, en um áratuga skeið voru þar haldin hestamannamót og aðrar samkomur borgfirskra hestamanna. Eins voru þar haldin fyrstu fjórðungsmót á Vesturlandi, það síðasta 1975. Nú hefur öllu mótshaldi hestamanna og annarra verið hætt á þeim stað og þykir nefndarmönnum það einboðið að flytja nafnið á annan stað sem verður væntanlega miðstöð sýninga og skemmtana margskonar um mörg ókomin ár, svipað hlutverk og hin eldri Faxaborg hafði hérna áður fyrr.”
Mikið var um dýrðir á vígsludaginn. Hátíðin hófst kl. 15:00 með setningarávarpi Inga Tryggvasonar en síðan sá séra Þorbjörn Hlynur Árnason prófastur um húsblessun. Þá rakti Kristján Gíslason byggingarsögu hússins en síðan fluttu gestir ávörp og ýmis skemmtiatriði. Benedikt Líndal var með töltsýningu og söngelskar hestastelpur frá Hvanneyri komu fram. Þá komu börn og unglingar úr Faxa fram og sýndu listir á gæðingum sínum. Veitingar voru í boði Gæðakokka ehf. í Borgarnesi.
Hin nýja sýninga- og reiðhöll er alls 1.904 fermetrar að stærð og mun gjörbreyta aðstöðu hestamanna á svæðinu auk þess að bjóða upp á fjölbreytta möguleika fyrir sýningar og fleira.
|