Vel miðar hjá skátunum í Einherjum-Valkyrjum frá Ísafirði sem eru þessa dagana að hjóla til Reykjavíkur áleiðis á skátamót í Viðey. Var hjólreiðafólkið að Laugum í Sælingsdal í nótt en nú síðdegis í dag var það að nálgast Borgarnes. Tveir skátanna urðu fyrir því óláni að hjólin þeirra skemmdust en við eftirgrennslan í Búðardal var þeim bent á bónda á Svarfhóli sem gerði við bæði hjólin. Á meðan héldu hinir í hópnum áfram að hjóla í lemjandi rigningu. Að öðru leyti hefur ferðin gengið vel. Þá fengu félagarnir að fara gangandi yfir Mjóafjarðarbrúna en erfitt fannst þeim að hjóla yfir Þorskafjarðarheiði því hún var holótt og mikið ryk af bílum sem óku framhjá. Skátarnir eru átta talsins; fimm strákar og þrjár stúlkur. Á meðfylgjandi mynd frá bb.is á Ísafirði, er tveir úr hópnum að renna sér niður af Svínadal í Dölum.
Heimild: www.bb.is
|