Bæjarstjórn Grundarfjarðar hefur auglýst eftir áhugasömum einstaklingum sem hefðu hug á að setja upp líkamsræktarstöð í Grundarfirði. Ef samningar takast, býður Grundarfjarðarbær rúmlega 180 fermetra húsnæði til afnota fyrir slíka starfsemi í íþróttahúsinu við Borgarbraut. Á vef Grundarfjarðarbæjar kemur fram að með húsnæðinu geti fylgt afnot af búningsklefum og sturtum. Þá sé einnig möguleiki á samstarfi við sundlaugina um afnot af henni í tengslum við starfsemi líkamsræktarstöðvar en það verði að semja sérstaklega. Húsnæðið getur verið laust þegar starfsemi félagsmiðstöðvarinnar lýkur í maímánuði.
|