Prentað sunnudaginn 26. maí kl. 07:09 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Hvernig líst þér á nýju ríkisstjórnina?

Mjög illa

Frekar illa

Hlutlaus

Frekar vel

Mjög vel

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Minnisvarðar um skáldin þrjú úr Saurbænum

23. júní 2008

Nú er verið að undirbúa uppsetningu minnisvarða um skáldin þrjú úr Saurbænum, þá Stefán frá Hvítadal, Stein Steinarr og Sturlu Þórðarson. Minnisvarðarnir verða þrjár steinsúlur, sem komið verður fyrir á hóli við Staðarhólskirkju þaðan sem gott útsýni er til æskustöðva skáldanna.  „Þetta voru allt Dalamenn þótt þeir hafi dvalið misjafnlega lengi í Saurbænum og verið upp á misjöfnum tíma, því Sturla Þórðarson var auðvitað uppi á þrettándu öld en hinir á þeirri tuttugustu,” segir Sigurður Þórólfsson frá Fagradal, sem ásamt fleirum vinnur að undirbúningnum. 

 

 

 

Sigurður segir ætlunina að afhjúpa minnisvarðana 23. ágúst næstkomandi. Hann segir Stefán frá Hvítadal hafa komið 14 ára í Saurbæinn en síðan flutt með fósturforeldrum til Noregs og þaðan aftur í Saurbæinn, þar sem hann andaðist 45 ára gamall. Steinn Steinarr ólst upp í Saurbænum en flutti suður um tvítugsaldur. Sigurður segir hann hafa borið hlýjar tilfinningar til æskustöðvanna í Dölum og oft haft orð á því. Hann sagðist gera ráð fyrir að sömu tilfinningar hafi Dalamaðurinn Sturla Þórðarson borið í brjósti fyrir meira en 700 árum síðan.

 

 

Á myndinni eru þeir Sigurður Þórólfsson, Sigurður Jökulsson og Stefán Jónsson að undirbúa uppsetningu minnisvarðanna. Hér standa þeir, þar sem steinsúlurnar þrjár verða; á hóli við Staðarhólskirkju. Ljósm: Helga H. Ágústsdóttir.

 

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 07:00  A 9  5°C
Akrafjall 06:50  ANA 6  5°C
Hafnarfjall 06:50  NNA 6  4°C
Vatnaleið 06:50  NA 8  1°C
Hraunsmúli 06:50  ANA 5  4°C
Fróðárheiði 06:50  ANA 1  -0°C
Brattabr. 06:50  NNA 4  0°C
Holtav.h. 07:00  N 6  -1°C
Laxárdalsh. 06:50  NNA 10  0°C
Svínad. 07:00  NA 9  1°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent