Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar hefur leitað til bæjarstarfsmanna um aðstoð við sjúkraflutninga í sveitarfélaginu. Á mánudaginn hélt hann fund með starfsfólki íþróttahúss, hafnarinnar og áhaldahúss í þeim tilgangi að kanna hvort starfsfólkið gæti tekið að sér störf sjúkraflutningamanna. ,,Það var auglýst eftir þremur sjúkraflutningamönnum í vetur, en enginn hefur sótt um. Framkvæmdastjóri heilsugæslustöðvarinnar setti sig í samband við okkur til að athuga hvort starfsmenn bæjarins gætu tekið að sér þessi störf og við höfum ekkert út á það að setja að starfsmenn okkar geri það. Það er ótækt að aðeins einn sjúkraflutningamaður sé starfandi eins og er í dag. Heilsugæslan mun sjá um að mennta þá starfsmenn, sem vilja sækja um þessar stöður,“ segir Kristinn og bætir við að hann hafi fengið jákvæð viðbrögð á fundinum.
|