Í gær voru haldnir tvennir stórtónleikar í Tónbergi á Akranesi. Um var að ræða samstarfsverkefni árganga 2002 og 2003 í leikskólanum Vallarseli og Nýgræðinga “litlu lúðrasveitar” Tónlistarskólans. Um 100 börn tóku þátt og léku þau meðal annars svokallaða Risaeðlusvítu eftir Paul Jennings auk nokkurra þekktra laga. Stjórnandi verkefnisins er Anna B. Nikulásdóttir og Katrín Valdís Hjartardóttir ásamt kennurum í Vallarseli.
Fleiri myndir og nánari umfjöllun verður að finna í næsta tölublaði Skessuhorns. |