Gunnólfur Lárusson sveitarstjóri segir að menn hafi verið á því að breyta til að þessu sinni. „Þegar er búið að halda tvo undirbúningsfundi og stefnt er að samvinnu milli sveitarfélgsins og allra félagasamtaka á svæðinu til að halda hátíðina sem þetta árið verður í þorpinu sjálfu. Margar hugmyndir hafa verið ræddar en engar ákvarðanir teknar enn sem komið er. Rætt hefur verið um að litlir viðburðir verði í gangi hér og hvar um þorpið og að það geti vel komið til greina að hafa eitthvert víkingaþema með. Einnig að jafnvel verði rútuferðir upp í Eiríksstaði, svona nokkurs konar áætlunarbílar á einhverra klukkutíma fresti, ef fólk vill skreppa þangað og skoða. En allt er á umræðustigi og ekkert fast í hendi með dagskráratriði eða útfærslur.“ Gunnólfur bætti við að helst yrði óskað eftir því að fjölskyldufólk mætti á staðinn og gerði sér glaðan dag. Brottfluttir Dalamenn og forvitnir myndu vonandi hópast vestur til að njóta þess sem Dalirnir, er sífellt heilla, hefðu upp á að bjóða.
|