„Þessi hugmynd er búin að liggja í loftinu í nokkurn tíma. Við vorum búnar að ræða ýmislegt okkar á milli varðandi það hvernig hægt væri að nýta það sem við höfum upp á að bjóða. Ef einhver staður hefur eitthvað heilsutengt þá er það hjá okkur með varmann, þarann og heilnæma loftið,“ segir Sigurbjörg Daníelsdóttir á Reykhólum sem ásamt þremur öðrum konum í þorpinu hyggst bjóða upp á nýjan kost í heilsurækt, svokölluð þaraböð. Þær stöllur hafa fengið aðstöðu í kjallara sundlaugarhússins og stefna á að böðin verði tekin í notkun um mitt sumar.
Nánar er fjallað um verkefnið í nýjasta tölublaði Skessuhorns sem kom út í gær. |