Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 10:22 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Landvörður á friðlýst svæði Vesturlands

19. mars 2008

Húsafell. Ljósm. Mats
Umhverfisstofnun ætlar að ráða landvörð í fullt starf í sumar til að fylgjast með friðlýstum svæðum á Vesturlandi. Þetta er tilraunaverkefni en starfið var auglýst nýlega ásamt störfum landvarða á náttúruverndarvæðunum þjóðgarðinum Snæfellsjökli, friðlandi að Fjallabaki, Mývatnssveit, Vatnsfirði, Gullfossi og Geysi, Dyrhólaey og Hornströndum. Náttúruverndarsvæðin lúta öll stjórn Umhverfisstofnunar en ýmist er starfsfólk eitt við landvörslu eða undir stjórn yfirlandvarðar eða þjóðgarðsvarðar viðkomandi svæðis.

 

 

Hjalti Guðmundsson sviðsstjóri náttúruaðlinda hjá Umhverfissofnun segir að með nýja starfinu á Vesturland sé verið að bæta framkvæmd með eftirliti friðlýstra svæða á landinu. Með svokallaðri svæðalandvörslu sem nú er beitt á Vesturlandi í tilraunaskyni verður það prófað að landvörður fylgist með fleiri en einu friðlýstu svæði. Hlutverk nýs starfsmanns á Vesturlandi verður að hafa eftirlit með svæðum eins og Húsafellsskógi, Barnafossum og jafnvel Eldborg.

Störf landvarða á framangreindum svæðum felast m.a. í að fylgjast með að á svæðinu séu ekki brotin ákvæði friðlýsingar svæðisins og lög um náttúruvernd, sjá um vöktun umhverfisþátta, móttöku gesta, veita upplýsingar og fræða gesti, halda við merktum gönguleiðum, sjá um gönguferðir og fræðslustundir og vera viðbúnir ef slys bera að höndum. 

 

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 10:10  V 2  11°C
Akrafjall 10:10  ASA 3  13°C
Hafnarfjall 10:10  NNA 4  12°C
Vatnaleið 10:10  NV 4  9°C
Hraunsmúli 10:10  NNA 5  12°C
Fróðárheiði 10:10  NV 4  7°C
Brattabr. 10:10  N 4  9°C
Holtav.h. 10:10  NA 5  10°C
Laxárdalsh. 10:10  NNA 6  11°C
Svínad. 10:10  NNA 4  12°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent