Um síðustu mánaðamót tók í gildi nýtt skipulag innanhúss á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi, DAB, þegar skerpt var á línum í rekstri heimilisins með því að ráða tvo nýja forstöðumenn, annars vegar í þjónustusvið heimilisins og hins vegar hjúkrunarsvið. Halla Magnúsdóttir tók við starfi forstöðumanns þjónustusviðs heimilisins en undir það heyrir mannahald og skipulag á afþreyingu heimilisfólks, þvottar, ræsting og eldhús. Jórunn María Ólafsdóttir var ráðinn í starf forstöðumanns hjúkrunarsviðs á sama tíma. Hún hefur umsjón með mannahaldi og faglegri umsjón með umönnun heimilisfólks.
|