Veðurhamur gekk yfir hluta Vestulands með kafaldsbyl og tilheyrandi ófærð um nýliðna helgi. Eftir hádegi á sunnudag og fram á mánudagsmorgun lokuðust bæði Holtavörðuheiði og Brattabrekka allri umferð og urðu björgunasveitamenn að liðsinna vegfarendum niður til byggða af Holtavörðuheiði. Ekki var mögulegt að moka snjó og opna fyrir umferð á nýjan leik fyrr en um morgunsárið í dag þegar veður hafði gengið niður að mestu. Vegagerðin ákvað að halda Heydal og Laxárdalsheiði opinni og færðist því öll umferð á norðurleið þangað. Vegfarendur þurftu því að bæta 65 kílómetrum við ferðalagið til að komast leiðar sinnar. Það má því segja að samgönguleiðin um Heydal og Laxárdalsheiði hafi minnt á gildi sitt, þó langt sé um liðið frá því að þessar aðstæður hafi síðast komið upp.
|