 Akraneskaupstaður og Borgarbyggð stefna að samstarfi í menningarmálum og er stefnt að því að undirrita samkomulag þess efnis þann 13. apríl. Að sögn Jóns Pálma Pálssonar bæjarritara á Akranesi hafa hugmyndir um formlegt samstarf verið ræddar frá því á síðasta ári er nefndir sveitarfélaganna er sinna menningarmálum hittust. Þar báru menn saman bækur sínar og síðan hefur fyrirkomulag væntanlegs samstarfs tekið á sig mynd. Jón Pálmi segir að trúlega verði samstarfið í fyrstu í tveimur ákveðnum verkefnum sem greint verður frá við undirskrift samningsins.
|