Á næstu tveimur árum mun Umferðarstofa festa kaup á 11 öndunarsýnamælum sem afhentir verða lögreglu til notkunar. Einnjig mun Umferðarstofa á sama tíma fjármagna kaup á 8 bifhjólum búnum ratsjárbúnaði með myndavélum sem notuð verða við eftirlit lögreglu. Hjól þessi verða fyrst og fremst notuð við umferðareftirlit. Einnig mun Umferðarstofa á þessu ári fjármagna kaup á 6 ratsjártækjum með myndavélum á núverandi lögreglubifhjól og einnig 18 slíkum tækjum í lögreglubíla.
Vegagerðin mun á næstu tveimur árum fjármagna kaup á 16 hraðamyndavélum og myndavélakössum auk hugbúnaðar sem afhentur verður Ríkislögreglustjóra til notkunar til eftirlits lögreglunnar. Vegagerðin mun fjármagna rekstur vélanna.
Þá verður á næstu tveimur árum varið 100 milljónum króna í sérstakt umferðareftirlit lögreglunnar á helstu þjóðvegum landsins. Umrætt eftirlit er til viðbótar við hefðbundið eftirlit lögreglunnar og verður sérstök áhersla lögð á eftirlit við þekkta slysastaði.
Einnig mun Umferðarstofa á næstu tveimur árum greiða ígildi tveggja stöðugilda hjá Ríkislögreglustjóra til að annast verklega framkvæmd við úrvinnslu sekta úr hraðamyndavélum.
Í ávarpi sem Sturla Böðvarsson samgönguráðherra flutti við undirritun samningsins kom fram að samningurinn dragi á engan hátt úr öðrum verkefnum eða hefðbundnu eftirliti lögreglunnar heldur sé þarna um að ræða hreina viðbót við þær öryggisráðstafanir sem þegar eru gerðar að hálfu lögreglunnar. Þá boðaði hann að með vorinu yrðu settar fram tillögur um endurskoðun á umferðarlögum er snúast eiga um ökumann og farartæki, áróður og fræðslu, öruggari vegi og umhverfi þeirra og aukna fræðslu og markvissari áróður í umferðaröryggismálum.
Þá nefndi ráðherra að fram hafa komið hugmyndir um að auka umferðarfræðslu á öllum sviðum. Best væri að geta samtvinnað alla umferðarfræðslu í grunnskólum og framhaldsskólum þannig að börn og unglingar fái þar góða og markvissa fræðslu. Mikilvægt sé að börn og unglingar fái það strax á tilfinninguna að því fylgir mikil ábyrgð að vera vegfarandi hvort sem er gangandi, hjólandi eða akandi. Sérstök áhersla verði lögð á aðdraganda ökuréttinda og byggt undir þá fræðslu með öruggri þjálfun og kennslu.
|