Prentað fimmtudaginn 20. júní kl. 12:12 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Kurr vegna kaupa á leikskóla frá Selfossi

26. júní 2006

Sveitarstjóri Borgarbyggðar mun funda með verktökum í sveitarfélaginu vegna óánægju með þá ákvörðun byggðaráðs sveitarfélagsins að festa kaup á húsi fyrir nýjan leikskóla við Ugluklett í Borgarnesi án útboðs. Sveitarstjórinn segir þarna farið að vilja undirbúningsnefndar en einungis sé um að ræða hluta heildarframkvæmdarinnar.

 

Nokkuð er síðan bæjarstjórn Borgarbyggðar ákvað að byggja nýjan leikskóla við Ugluklett í Borgarnesi. Í síðustu viku ákvað síðan byggðaráð hinnar nýju Borgarbyggðar að fela Sigurði Páli Harðarsyni bæjartæknifræðingi að semja við SG-hús hf. á Selfossi um kaup á húsi fyrir leikskólann. Einnig var honum falið að bjóða út aðra verkþætti við byggingu leikskólans. Þessi ákvörðun byggðaráðs vakti nokkra undrun því eins og kunnugt er stendur byggingariðnaður traustum fótum í sveitarfélaginu.

 

Páll Brynjarsson sveitarstjóri Borgarbyggðar segir nokkra umræðu hafa orðið um þessa ákvörðun byggðaráðs og hann muni funda með verktökum í sveitarfélaginu á næstu dögum vegna málsins. Hann segir að nefnd sem í hafi setið fulltrúar stjórnmálaflokka og fagaðila hafi á sínum tíma kynnt sér þá kosti sem í boði voru vegna byggingar nýs leikskóla. Meðal annars hafi nefndin kynnt sér leikskóla sem SG-hús hf. hafi hannað og reist á nokkrum stöðum. Nefndinni hafi litist vel á og lagt til að hús af þeirri gerð yrði keypt. Páll segir að SG-hús selji einungis hönnun og einingar hússins og sá kostnaður sé einungis hluti endanlegs framkvæmdakostnaðar eða um 30 milljónir af um 110-120 milljóna króna heildarkostnaði. Því eigi eftir að taka ákvörðun um með hvaða hætti stærstur hluti verksins verði framkvæmdur. 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 12:00  NA 6  13°C
Akrafjall 12:00  A 8  12°C
Hafnarfjall 12:00  NA 7  11°C
Vatnaleið 12:00  NV 6  8°C
Hraunsmúli 12:00  NNA 6  12°C
Fróðárheiði 12:00  NNA 4  9°C
Brattabr. 12:00  N 7  7°C
Holtav.h. 12:00  N 8  6°C
Laxárdalsh. 12:00  NNA 10  8°C
Svínad. 12:00  N 4  9°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
Guðmundur Páll Jónsson og Sveinn Kristinsson: „Það eru sólarlitlir dagar“
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent