Prentað laugardaginn 25. maí kl. 19:34 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Hvernig líst þér á nýju ríkisstjórnina?

Mjög illa

Frekar illa

Hlutlaus

Frekar vel

Mjög vel

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Öll bitastæðustu laxveiðileyfin uppseld

9. júní 2006

Laxveiðin er að komast á fullt þessa dagana, hver veiðiáin af annarri opnar fyrir spenntum veiðimönnum. Norðurá opnaði 1. júní og þar hafa nú veiðst um 20 laxar og er 12 pund sá stærsti.  Þverá í Borgarfirði opnar 12. júní, Laxá í Leirársveit 18. júní, Grímsá 20. júní og Langá sama dag. Fluguveiðiskólinn byrjar í Langá 18. júní og gætu fyrstu laxarnir komið á land hjá "skólabörnunum hans Ingva Hrafns."

 

Vel hefur gengið að selja veiðileyfi í laxveiðiárnar á Vesturlandi eins og raunar víða um land, uppselt er í margar ár og aðeins hægt að komast í silung eða í ódýra laxveiði.

“Ég reyndi að fá veiðileyfi í Norðurá en það gekk ekki, hún er næstum uppseld,” sagði veiðimaður sem reyndi í fleiri veiðiám á svæðinu en án árangurs. “Það er fyrir löngu uppselt hjá okkur í Langá,” sagði Ingvi Hrafn Jónsson, er við spurðumst fyrir um laus veiðileyfi. Sömu sögu er að segja um Laxá í Leirársveit, Grímsá, Flókadalsá, Hítará, Álftá, Haffjarðará og Straumfjarðará, svo fáar einar séu nefndar til sögunnar. Veiðileyfi eru því vandfundinn á góðum og þar af leiðandi dýrum tímabilum í ánum.

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 19:20  VSV 3  5°C
Akrafjall 19:20  VSV 6  6°C
Hafnarfjall 19:20  SSV 8  5°C
Vatnaleið 19:20  SA 7  4°C
Hraunsmúli 19:20  ANA 8  6°C
Fróðárheiði 19:20  ASA 4  4°C
Brattabr. 19:20  SSV 10  2°C
Holtav.h. 19:20  SSV 11  2°C
Laxárdalsh. 19:20  ANA 4  2°C
Svínad. 19:20  S 5  3°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent