Sjávarútvegssýningin í Brüssel er stærsta fagsýning í heimi á sviði sjávarútvegs og tóku meira en 1600 fyrirtæki, frá um 70 löndum þátt í henni. Um 30 íslensk fyrirtæki kynntu starfsemi sína á sýningunni.
Samstarf við Scanvægt
Nýverið var undirritaður samstarfssamningur milli fyrirtækisins og Scanvægt. Scanvægt er með 18 söluskrifstofur um allan heim og eru umboðssöluaðilar fyrir Skagann en Skaginn er umboðssöluaðili fyrir Scanægt á Íslandi. Skaginn sérhæfir sig aðallega í framleiðslu á tækjabúnaði til fiskvinnslu en einnig hefur fyrirtækið framleitt kjúklingafrysta fyrir einn stærsta kjúklingaframleiðanda í Bandaríkjunum.
Í samtali við Skessuhorn sagði Grímur Garðarsson framkvæmdastjóri Skagans að sýningin hafi heppnast vel, og að samingurinn við Scanvægt væri gríðarlega mikilvægur, bæði fyrir Skagann og Scanvægt. Skaginn er nú að fjölga starfsfólki og vantar fólk í flestar deildir fyrirtækisins. |