Þar sem við sáum ekki fram á að mikill vilji væri hjá mönnum sem standa að þessum upprekstrarmálum á svæðinu að breyta og samræma smalamennskur, sem hlýtur að þurfa að gerast þar sem bændum fækkar stöðugt og smalamennskur verða sífellt erfiðari, þá sóttum við um að fá að keyra okkar fé fram á Holtavörðuheiði. Þar er búið að reisa girðingu sem á að koma í veg fyrir að fé komist vestur í dali. Eins og staðan er í dag fáum við mikið af okkar fé vestan úr dölum á haustin.”
Málið hefur ekki verið endanlega afgreitt en bæjarstjórn Borgarbyggðar vísaði málinu áfram til gróðurnefndar og fjallskilanefndar Mýrasýslu og Landbúnaðarnefndar Borgarbyggðar. “Þetta kemur til með að breyta búskapnum heilmikið hjá okkur. Ef af þessu verðr þurfum við að keyra féð fram á Holtavörðuheiði í vor og í haust fáum við féð í Þverárrétt, en við eigum raunverulega upprekstur að Brekkurétt. Úr Þverárrétt verðum við annað hvort að reka eða keyra féð heim. Þetta hefur aukinn kostnað í för með sér en kostirnir er margir, en sá stærsti er sá að við fáum flest okkar fé heim fyrr en ella.”
|