Á aðalfundi Búnaðarsamtaka Vesturlands, sem haldinn var í Fossatúni 5. apríl sl., var mótmælt vinnubrögðum kröfunefndar ríkisins í óbyggðamálum og þess krafist að ríkið láti af stefnu sinni í þessum málum. Í greinargerð með ályktuninni segir: “Við mótmælum því að fornir samningar, eignaskipti og landamerkjabréf sem eru meira en hundrað ára gömul og enginn hefur hreyft mótmælum við af nærliggjandi landeigendum séu ekki tekin gild eða sem einskisverð plögg. Þá mótmælum við þeim fjáraustri ríkisins sem farið hefur til kröfunefndar ríkisins óbyggðamálum tengd. Við teljum það forgangsmál að öllum landeigendum sem þurft hafa að kaupa sér málsvörn til að verja sínar eignir verði sá kostnaður endurgreiddur að fullu. Ellefu alda búseta á Íslandi hefur skapað hefð sem öllum lögum er æðri.” |