Prentað fimmtudaginn 20. júní kl. 01:44 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Enn barist við elda á Mýrum

31. mars 2006

Mikill fjöldi slökkviliðsmanna frá Akranesi, Borgarnesi, Búðardal, Reykjavík og Borgarfirði er nú við störf á Mýrum og freista menn þess að hefta enn frekari útbreiðslu sinueldsins sem átti upptök sín við Snæfellsnesveg í gærmorgun. Nú þegar hefur á milli 60-80 ferkílómetrar lands brunnið og er talið að hér sé um að ræða mestu sinubruna sem skráðar heimilildir eru til um að orðið hafi hér á landi. Enn hefur slökkviliði tekist að verja mannvirki á þeim bæjum sem eldurinn hefur náð að og ljóst að bæði slökkviliðsmenn, bændur og aðrir hafa unnið þrekvirki við erfiðar aðstæður. Notast er við dráttarvélar með haugsugur, slökkvibíla og ekki síst klöppur því ekki er alltaf hægt að koma slökkvitækjum að eldinum. Seint í kvöld var mestur eldur í nágrenni Ánastaða.

 

Á meðfylgjandi gervitunglamynd sem tekin var um miðjan dag í gær má glöggt sjá (ef smellt er á stækkaða útgáfu myndarinnar) hversu stórt landssvæðið er sem brunnið hefur.

Blaðamaður Skessuhorns var á ferðinni í Hraunhreppnum nú síðari hluta dags og framyfir kvöldmat og börðust menn enn við elda í nágrenni nokkurra bæja. Vonir standa til að takist hafi að hefta útbreiðslu elda nú undir kvöld þannig að þeir nái ekki til bóndabæja sem þarna eru. Slökkvistarf heldur áfram í kvöld og vafalaust einnig í nótt og á morgun.

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 01:30  A 0  8°C
Akrafjall 01:30  VNV 0  8°C
Hafnarfjall 01:30  V 3  8°C
Vatnaleið 01:30  NNV 2  7°C
Hraunsmúli 01:30  NNV 4  10°C
Fróðárheiði 01:30  VNV 2  6°C
Brattabr. 01:30  NNA 2  5°C
Holtav.h. 01:30  N 5  4°C
Laxárdalsh. 01:30  NA 3  4°C
Svínad. 01:20  S 1  5°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent