Prentað fimmtudaginn 23. maí kl. 04:40 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Íbúar við Vesturgötu óska lokunar Laugafisks

28. mars 2006

Bæjarráð Akraness hefur vísað til heilbrigðisnefndar ósk íbúa við Vesturgötu um að starfsleyfi Laugafisks verði afturkallað. Starfsleyfið sem nú er í gildi rennur út í apríl 2007. Forsaga málsins er sú að um nokkurra ára skeið hefur fyrirtækið Laugafiskur rekið fiskþurrkun á Akranesi. Fiskþurrkun fylgir ólykt sem seint verður talin eftirsóknarverð í návígi. Hafa nágrannar fyrirtækisins á Akranesi lengi kvartað undan ólyktinni og hafa málefni þess oft komið til kasta bæjaryfirvalda og heilbrigðisnefndar Vesturlands.

Í bréfi því sem íbúar við Vesturgötu sendu á dögunum til Guðmundar Páls Jónssonar bæjarstjóra kemur fram að undanfarið hafi verið í gangi tilraunaverkefni til að fullreyna tæknibúnað „sem átti að ráða bót á lyktarvandamálum samfara vinnslunni,“ segir í bréfinu og einnig segir að nú sé liðinn sá tími sem heilbrigðiseftirlitið gaf til verkefnisins.

 

Þá segir að á íbúafundi sem haldinn var í sumarbyrjun 2005 hafi eigendur og hluthafar ásamt fulltrúa verkalýðsfélagsins eftir vinnufriði til að ljúka þessu verkefni. Þá segir orðrétt í bréfinu: „Ítrekað allt síðastliðið sumar og í allan vetur hefur orðið vart við lyktarmengun frá fyrirtækinu þegar vindátt hefur staðið af því og á það við bæði húsin, Breiðargötu og Vesturgötu. Þegar reynt hefur verið að koma þeim kvörtunum til heilbrigðisfulltrúa, sem oftast hefur verið utan hefðbundins skrifstofutíma þegar við íbúarnir erum heimavið, hafa svörin verið að ekki sé hægt að bregðast við nema á skrifstofutíma nema líf liggi við. Vill heilbrigðiseftirlitið meina að það sé í verkahring lögreglu að taka við kvörtunum sem þessum“.

Íbúarnir segjast hafa gengið þrautagöngu í þessu máli og óska því hér með eftir að starfsleyfi fyrirtækisins verði ekki framlengt þegar það rennur út í apríl 2007 og að fyrirtækinu verði tilkynnt um það nú þegar „þar sem við teljum fullreynt að engin breyting hafi orðið á þessum reynslutíma.“

 

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 04:30  ASA 6  3°C
Akrafjall 04:20  ANA 3  5°C
Hafnarfjall 04:20  VSV 1  2°C
Vatnaleið 04:30  SA 4  1°C
Hraunsmúli 04:20  A 5  3°C
Fróðárheiði 04:20  A 8  0°C
Brattabr. 04:20  SSV 1  -0°C
Holtav.h. 04:20  S 2  -2°C
Laxárdalsh. 04:20  SA 5  1°C
Svínad. 04:20  ASA 3  1°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
Snæfellsbær: Allir á sjó
Grundarfjarðarbær: Köttur í óskilum
Stykkishólmsbær: Tilkynning - Athugið
Stykkishólmsbær: 296. fundur bæjarstjórnar
Borgarbyggð: Ljóð unga fólksins
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent