Samhliða skipulagsbreytingum sem stjórn HB Granda hf. hefur ákveðið að gera láta bæði Sturlaugur Sturlaugsson forstjóri á Akranesi og Kristján Þ Davíðsson aðstoðarforstjóri af störfum hjá fyrirtækinu. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir m.a: “Í kjölfarið á sameiningu HB Granda hf. við Tanga hf. og Svan RE-45 ehf. hefur stjórn HB Granda hf. gert breytingar á yfirstjórn fyrirtækisins. Með breytingunum er lögð enn frekari áhersla á markaðsmál fyrirtækisins og fylgt eftir þeirri stefnu sem mörkuð var á síðasta ári með stofnun sérstakrar markaðsdeildar.”
Eggert B Guðmundsson, sem verið hefur markaðsstjóri fyrirtækisins verður forstjóri og framleiðslustórinn, Svavar Svavarsson, hefur verið gerður að markaðsstjóra í hans stað. Þá verður Vilhjálmur Vilhjálmsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri Tanga hf., yfirmaður uppsjávarsviðs, Torfi Þorsteinsson, sem verið hefur yfirmaður uppsjávarsviðs, verður yfirmaður landvinnslu bolfisks. Stofnað hefur verið nýtt svið viðskiptaþróunar sem mun ná yfir starfsemi fyrirtækisins í fiskeldi, sem og ný rannsókna- og þróunarverkefni. Ekki hefur verið ráðið í stöðu forstöðumanns þess sviðs. Aðrar stöður yfirstjórnenda verða óbreyttar. |