Skessuhorn: |
|
Sparisjóðurinn kaupir Eðalfisk |
|
14. júní 2003 |
Sparisjóður Mýrasýslu hefur keypt allt hlutafé í Eðalfiski hf í Borgarnesi af Svissneskum fjárfestum sem áttu tvo þriðju hluta og Íslensk Ameríska sem átti einn þriðja hlutafjár í fyrirtækinu. Eðalfiskur hf. var stofnað árið 1987 og þar starfa í dag um tuttugu manns í vinnslustöðvum fyrirtækisins í Borgarnesi og Reykjavík. Fyrirtækið sérhæfir sig í framleiðslu á reyktum og gröfnum laxi og framleiðir einnig salöt. Afurðir fyrirtækisins eru meðal annars fluttar til Bandaríkjanna og Danmerkur. |
| Að sögn Kjartans Broddi Bragasonar hjá Sparisjóði Mýrasýslu eru kaupin meðal annars tilkomin vegna þess að sögusagnir hafi verið á kreiki um að Eðalfiskur væri á förum úr héraðinu. „Við vildum tryggja að fyrirtækið yrði hér áfram og sjáum þarna tækifæri til að efla enn frekar atvinnulíf á svæðinu. Við sjáum mikil tækifæri í þessu fyrirtæki, það framleiðir góðar vörur og hefur á að skipa hæfu fólki,“ segir Kjartan. Hann segir að á næstunni verði mótuð stefna fyrir fyrirtækið til frambúðar en aðspurður um hugsanlegar breytingar segir hann að slíkt verði uppi á teningnum verði það í þeim tilgangi að efla fyrirtækið á þessu svæði. |
|
| GE |
| |
 |
| |
|
|