Í bréfi til ábúendanna á Bjargi, Arnarstapa (dagsett 29. apríl sl.), Hafdísar Höllu Ásgeirsdóttur og Þórkels Geirs Högnasonar, er þeim tilkynnt um þennan forræðisflutning á jörðunum og þar er því lýst yfir að frá og með þeim tíma sé forræði jarðanna í eigu ríkisins á Arnarstapa á höndum umhverfisráðuneytisins. Segir þar ennfremur: „Erindi það sem lögmaður yðar sendi ráðuneytinu 27.02.´02 og sem varðar ósk yðar um að kaupa ábýlisjörðina er óafgreitt í landbúnaðarráðuneytinu og verða málskjöl þess áframsend umhverfisráðuneytinu. Tilflutningur til umhverfisráðuneytisins á engu að breyta varðandi réttindi yðar sem ábúanda. Undir þetta skrifar Sigurður Þráinsson, deildarstjóri í landbúnaðarráðuneytinu. Jón Höskuldsson, lögmaður Hafdísar og Þórkels, segir að honum sýnist að með þessum forræðisflutningi sé ekki farið að Jarðalögum en í 36. grein þeirra segir: „Jarðadeild landbúnaðarráðuneytisins fer með málefni jarða í ríkiseign, nema annað sé ákveðið í lögum.“ Jón segir að þarna sé skýrt kveðið á um að lagabreytingu þurfi til að skipta um forræði yfir ríkisjörðum. Hann segir að í þessu máli verði einnig að taka tillit til 33. greinar sömu laga þar sem segir: „Ef eigandi eða annar rétthafi fasteignar ráðstafar fasteignarréttindum andstætt fyrirmælum laga þessara um forkaupsréttarhafi, sem órétti var beittur, krafist þess, að salan verði ógilt, enda sé málsókn til þess hafin innan sex mánaða frá því að hann fékk vitneskju um misfelluna og málinu fram haldið með hæfilegum hraða.“ |