Nýverið voru settir nemar í veginn undir Hafnarfjalli sem eiga að mæla fjölda bifreiða, aksturstefnu, bíllengd og hraða þeirra sem eiga leið þar um. Það er Vegagerðin sem stendur að þessum mælingum og samkvæmt Einari Pálssyni hjá Vegagerðinni í Borgarnesi er tilgangurinn að greina umferðina út úr þéttbýliskjörnum og finna þannig út gerð umferðarinnar á viðkomandi stöðum með tilliti til ýmissa þátta. Má öruggt telja að Lögreglan í Borgarnesi muni hagnýta sér upplýsingarnar um gerð umferðarinnar undir Hafnarfjalli og grípa inn í þegar hár hraði og þétt umferð fer saman, en allir aðrir áhugasamir um gerð umferðar geta nálgast þessar upplýsingar í gegnum vef Vegagerðarinnar. |