Skessuhorn: |
|
Skipin héldu til veiða í gærkvöldi |
|
17. maí 2001 |
| Togarar HB héldu til veiða í gærkvöldi eftir rúmlega 6 vikna verkfall sjómanna. Frystitogararnir Höfrungur III og Helga María stefndu á úthafskarfamiðin en ísfisktogararnir Haraldur Böðvarsson og Sturlaugur H. Böðvarsson fóru á heimamið, reyna sennilega við þorsk fyrir vestan. |
Búast má við að vinnsla hefjist að nýju í frystihúsinu á Akranesi snemma í næstu viku. Víkingur var að koma úr hefðbundnu viðhaldi í slippnum í Reykjavík og verður klár til síldveiða úr norsk-íslenska síldarstofninum um miðja næstu viku.
Verið er að gera Ingunni klára til flottrollsveiða, mun hún einnig verða tilbúin um miðja næstu viku. Ingunn mun sennilega hefja kolmunnaveiðar þegar skipið verður tilbúið en halda síðan til síldveiða þegar veiði glæðist í norsk-íslensku síldinni. |
|
| hb.is |
| |
 |
| |
|
|