Það var Paul McShane sem skoraði sigurmarkið á 55. mínútu en á 90 mínútu voru Grindvíkingar óheppnir að bæta ekki öðru marki við þegar Ólafur Flóventsson skaut framhjá fyrir opnu marki af tveggja metra færi. Fáeinum sekúndum seinna urðu Skagamenn fyrir áfalli er Gunnlaugur Jónsson var rekinn af leikvelli með tvö gul spjöld á bakinu. Gunnlaugur var annars besti maðurinn í slöku liði ÍA.
Lið ÍA: Ólafur Þór Gunnarsson, Pálmi Haraldsson, Sturlaugur Haraldsson, Gunnlaugur Jónsson (brottvísun 90.mín) Reynir Leósson Jóhannes Harðarson, Alexander Högnason, Haraldur Hinriksson (Andri Karvelsson 58. mín), Kári Steinn Reynisson, Hálfdán Gíslason (Hjörtur Hjartarson 67. mín), Baldur Aðalsteinsson(Grétar Rafn Steinsson 46.mín) |