Skessuhorn: |
|
ÁTVR í Búðardal |
Fimmta útibúið á Vesturlandi |
23. maí 2000 |
| Margt var um manninn síðdegis í dag að Gunnarsbraut 4 í Búðardal, en þar er Hárgreiðslustofa Hönnu til húsa. Ekki var þó verið að fagna nýrri hárlínu heldur lyftu menn glösum kampakátir í tilefni opnunar nýs útibús Áfengis og Tóbaksverslunar Ríkisins í norðurenda hússins. |
Í stuttu spjalli við blaðamann Skessuhorns upplýsti Höskuldur Jónsson forstjóri ÁTVR, sem var viðstaddur opnunina, að útibúið í Búðardal væri það 33ja sem opnað væri á landsbyggðinni.
Útibúið í Búðardal er það fimmta á Vesturlandi. Þar er boðið upp á 80 sölutegundir en einnig er hægt að panta af vörulista ÁTVR sem inniheldur 2300 tegundir.
Til stendur að ÁTVR fari af stað með netverslun á næstunni en beðið er eftir niðurstöðum úr dómsmálaráðuneytinu. |
|
| EE |
| |
 |
| |
|
|