Kirby kom fyrst til Halifax árið 1969 en þá var liðið í gömlu þriðju deildinni, sem nú kallast önnur deild. Þá leiktíð sigraði Halifax í 21 sinni og gerði 12 jafntefli í 46 deildarleikjum. Það munaði aðeins 4 stigum að liðið kæmist upp í aðra deild og er þetta besti árangur sem það hefur nokkru sinni náð.
Það var aðdáendum áfall þegar Kirby hætti hjá Halifax og gekk til liðs við Watford. Þar var hann í tvö ár, en náði sér ekki á strik þar.
Þá flutti hann sig um set, alla leið upp á Akranes við góðan orðstír eins og fyrr segir. Þaðan hélt hann svo til þjálfunarstarfa í Kuwait.
Í nóvember 1978 sneri George Kirby aftur heim til Englands og gekk á ný til liðs við Halifax Town þar sem hann leysti Jimmy Lawson af hólmi.
Hápunktur leiktíðarinnar 1979-1980 var hinn frægi heimasigur yfir Manchester City í þriðju umferð FA bikarkeppninnar. Yfir 12.000 manns pökkuðu sér inn á the Shay í fjórðu umferð þegar Halifax lék við Bolton, þar af kom helmingur langt að, með rútum og lestum. Þá tapaði Halifax naumlega.
Á næstu leiktíð varð Halifax sækja um leyfi til að taka þátt í deildakeppninni á ný þar sem þeir lentu í einu af fjórum neðstu sætum neðstu deildar. Lauk þá þjálfaraferli Kirbys hjá Halifax með uppsögn.
Eftir þetta þjálfaði hann ýmis lið, þar á meðal Everton, West Bromwich Albion og Queens Park Rangers.
Stjórnarformaður Halifax Town, Jim Brown, minnist Kirby’s með þessum orðum: "Það eru miklar sorgarfréttir sem okkur hafa borist. Við sendum innilegar samúðarkveðjur til eiginkonu hans og fjölskyldu".
"George Kirby naut óblandinnar virðingar í knattspyrnuheiminum. Hann stýrði félagi okkar með frábærum árangri". |