Í gær fór héraðsdýralæknir, fulltrúi frá Búnaðarsamtökum Vesturlands, sveitarstjóri, forðagæslumaður, lögreglumenn og hópur björgunarsveitarmanna að bænum Skíðsholti á Mýrum þar sem skepnur hafa verið vanfóðraðar um nokkurt skeið. Var hópi hrossa smalað og frá tekin þau 10 sem verst var ástatt með og þeim síðan ekið í sláturhús þar sem þau voru aflífuð. Til viðbótar var 13 hrossum komið í sérstaka aðhlynningu. Auk rúmlega 50 hrossa á bænum eru einnig 20 kindur en þær voru það styggar að þær náðust ekki í aðgerðunum í gær. Af þeim sökum er gert ráð fyrir að fara þurfi aðra ferð á bæinn og fella þurfi fleiri dýr.
Eigandi jarðarinnar hefur lengi búið í Borgarnesi en er nú fluttur til Reykjavíkur og er jörðin því í eyði. Yfirvöld tóku í taumana þar sem sýnt þótti að um vanrækslu og vanfóðrun skepnanna hafi verið að ræða. |