Prentað þriðjudaginn 18. júní kl. 22:44 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Fjárhagsáætlun Stykkishólms

Reksturinn í járnum

24. janúar 2003
„Það er ljóst að reksturinn er að verða þyngri hjá sveitarfélögum almennt. Launakostnaður, sem er stærsti útgjaldaliðurinn, fer vaxandi en gjaldskrárhækkanir hafa ekki fylgt þeim eftir,“ segir Óli Jón Gunnarsson bæjarstjóri í Stykkishólmi.
Óli Jón segir að í fjárhagsáætlun Stykkishólms sé gert ráð fyrir að tekjur standi á móti gjöldum þannig að reksturinn verði í járnum. „Árið 2001 var með því betra en ég sé ekki hvernig síðasta ár kom út. Það er þó ljóst að það var erfiðara og ástæðan er sú sem ég nefndi fyrr að launakostnaðurinn hefur hækkað.“
Óli Jón segir að framkvæmdir verði ekki miklar á árinu enda gæti þess enn að miklu framkvæmdatímabili sé nýlokið. „Það hefur dregið úr framkvæmdagetu vegna mikilla framkvæmda fyrir tveimur árum þegar við réðumst í hitaveituframkvæmdir meðal annars, en framkvæmdaþörfin hefur að sjálfsögðu minnkað líka. Fólk verður því að sýna þolinmæði á meðan sveitarsjóður er að jafna sig. Helstu framkvæmdir ársins verður gerð nýrrar götu frá Hafnargötu inn í gamla miðbæinn. Þá er reiknað með að Egilshúsið verði tekið í gegn og fækkað um eina skólpútrás svo það helsta sé nefnt. Við eigum nægar lóðir þannig að við þurfum ekki að huga að því að sinni en vonumst að sjálfsögðu til að sú þörf aukist sem fyrst,“ segir Óli Jón.
GE
 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 22:30  A 5  8°C
Akrafjall 22:30  A 3  8°C
Hafnarfjall 22:30  ASA 10  8°C
Vatnaleið 22:30  SA 5  7°C
Hraunsmúli 22:30  ASA 6  9°C
Fróðárheiði 22:30  ASA 8  5°C
Brattabr. 22:30  S 6  6°C
Holtav.h. 22:30  SSV 5  6°C
Laxárdalsh. 22:30  S 2  8°C
Svínad. 22:30  S 4  9°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent