Bæjarráð Stykkishólms lýsti yfir áhyggjum sínum vegna skerðingar aflaheimilda á hörpudiski í Breiðafirði á bæjarráðsfundi frá 14. júní sl. Fara aflaheimildirnar úr átta þúsund tonnum í sexþúsund og fimmhundruð tonn, en það er 19% niðurskurður. Voru aflaheimildirnar einnig skertar á síðasta ári, eða um 6%.
Bæjarráð Stykkishólms ályktaði á bæjarráðsfundinum að þessi mikli samdráttur á hörpudiskafla myndi koma hart niður á atvinnulífinu í Stykkishólmi. Fer það fram á það við Hafrannsóknarstofnun að rannsóknir verði nú þegar auknar og ástæður að baki minnkun veiðistofna skýrðar. Þá sé nauðsynlegt er að hraða þeirri vinnu sem kostur er og kynna niðurstöðurnar sem allra fyrst. smh |