Skessuhorn: |
Mikil þensla á vinnumarkaðnum |
Vantar fleiri iðnaðarmenn á svæðið |
Segir Guðrún Sigríður Gísladóttir forstöðumaður Sv |
11. apríl 2000 |
Undanfarna mánuði hefur atvinnuleysi á Vesturlandi verið með minnsta móti og jafnframt það lægsta á landinu, um 1%. Þó er ástandið mismunandi eftir kynjum og svæðum.
Í samtali við Guðrúnu Sigríði Gísladóttur forstöðumann Svæðisvinnumiðlunar Vesturlands kom fram að einkum vantar störf fyrir konur á Akranesi og fólk til fiskvinnslustarfa á Snæfellsnesi. Af þeim sökum eru hlutfallslega margir útlendingar við störf á Nesinu, einkum í Snæfellsbæ. Guðrún nefndi sem dæmi um skort á störfum fyrir kvenfólk á Skaganum að um 60 konur hefðu sótt um störf hjá Nettó, sem opnar verslun þar í dag. |
Ástandið er þó ekki svona slæmt í öllum geirum. Að sögn Guðrúnar vantar mikið af iðnaðarmönnum til starfa á Vesturlandi. “Það er sama hvort það eru smiðir, pípulagningamenn, múrarar eða málarar, það virðist vanta mikið af faglærðum iðnaðarmönnum sérstaklega á suðursvæðið”, sagði Guðrún. Húsnæðisskortur er einnig orðið vandamál, einkum á Akranesi og í Borgarnesi. “Fyrirtæki hafa lent í vandræðum með að manna stöður vegna þess að skortur er á leiguhúsnæði á þessum stöðum og fasteignaskrár eru tómlegar. Þannig má segja að nauðsynlegt sé að hraða sem kostur er byggingu íbúðarhúsnæðis þannig að svæðið njóti til fullnustu þenslunnar sem ríkir í þjóðfélaginu.
Guðrún vildi hvetja þá einstaklinga sem eru í atvinnuleit eða hyggðust skipta um starf í framtíðinni til að láta skrá sig hjá Svæðisvinnumiðluninni, jafnvel þó þeir væru enn í starfi. Einnig geta þeir sem áhuga hafa á að starfa erlendis, á EES svæðinu, skráð sig hjá Svæðisvinnumiðlun. Segir hún að núna með vorinu sé heldur að lifna yfir atvinnumarkaðnum sem lýsir sér í að atvinnurekendur eru í auknum mæli farnir að leita fyrir sér eftir starfsfólki.
Svæðisvinnumiðlunin hefur einnig milligöngu um að útvega starfsfólk af EES svæðinu. Sá þáttur hefur vaxið talsvert í kjölfar minnkandi atvinnuleysis. Svæðisvinnumiðlun Vesturlands er tilraunaskrifstofa hvað Internetið varðar. Þannig geta fyrirtæki óskað eftir starfsfólki í gegnum netið á slóðinni: www. vinnumalastofnun.is/
Fyrir eldra fólk og langtímaatvinnulausa getur Svæðisvinnumiðlunin gert starfsþjálfunar- eða reynsluráðningarsamninga við fyrirtæki til að auðvelda þessum aðilum endurkomu á vinnumarkaðinn. “Þá fá starfsmenn laun frá atvinnurekandanum en Atvinnuleysistryggingasjóður greiðir hluta af launum til fyrirtækisins á meðan verið er að komast inn í viðkomandi starf. Nú þegar hafa 3 slíkir samningar verið gerðir við fyrirtæki á Vesturlandi”, sagði Guðrún S. Gísladóttir að lokum.
|
|
| MM |
| |
 |
| |
|
|