Helgin verður annasöm á íþróttasvæðinu í Borgarnesi en Bónusmót Skallagríms fer fram á knattspyrnuvellinum og þá mun 9. bekkur Grunnskólans í Borgarnesi standa fyrir íþróttamaraþoni í Íþróttamiðstöðinni á sama tíma.
Á Bónusmóti Skallagríms etja kappi yngstu knattspyrnuiðkendurnir í 7. og 6. flokki, en stelpurnar spila á laugardeginum og strákarnir á sunnudeginum. Fjöldi liða tekur þátt og er gert ráð fyrir að um þúsund manns komi í Borgarnes um helgina að fylgjast með knattspyrnu. Að loknu móti hvorn dag verður slegið til heljarinnar grillveislu og verðlaunaafhendingu sem fer fram í Skallagrímsgarði.
Ekki verður minna fjör í Íþróttamiðstöðinni þar sem íþróttamaraþon 9. bekkjar fer fram en krakkarnir safna nú aurum í ferðasjóð fyrir útskriftarferð sína næsta haust. Dagana 2. til 3. júní munu þau æfa alls kyns íþróttir í heilan sólarhring en maraþonið hefst kl. 13 á laugardeginum og verður spriklað stanslaust til kl. 13 á sunnudeginum. Allir eru velkomnir í Íþróttamiðstöðina að fylgjast með.
|