Keflavík var með 30% skotnýtingu og Snæfell með 28%. Hildur Sigurðardóttir spilaði vel og var með 16 stig, tíu fráköst og fjórar stoðsendingar, Jordan Lee Murphree var með 12 stig, 13 fráköst og tvær stoðsendingar. Fyrir Keflavík spilaði Pálína Gunnlaugsdóttir best með 29 stig, tók tíu fráköst og átti þrjár stoðsendingar.
Snæfellsstúlkur eru nú í þriðja sæti deildarinnar en með þessum sigri eru þær öruggar um að fara ekki niður fyrir fjórða sæti. En Keflavíkurstúlkur þurfa að reyna að tryggja sér sigur deildarinnar í næsta leik.
|