Hljómsveitin Pollapönk mun heimsækja Vestlendinga á sunnudaginn. Þá ætlar hljómsveitin að halda tónleika í Borgarnesi og í Stykkishólmi. Tónleikarnir í Borgarnesi fara fram í Félagsmiðstöðinni Óðali og hefjast klukkan 13:00 og tónleikarnir í Stykkishólmi í Hótel Stykkishólmi klukkan 18:30.Tónleikarnir eru ætlaðir fyrir börn jafnt sem fullorðna. Hljómsveitin Pollapönk er skipuð þeim Heiðari Erni Kristjánssyni, Haraldi Frey Gíslasyni, sem áður gerðu garðinn frægan með hljómsveitinni Botnleðju, og þeim Guðna Finnssyni og Arnari Gíslasyni. Markmiðið hljómsveitarinnar er að búa til tónlist og texta sem er bæði fyrir börn og fullorðna. Einnig hefur Pollapönk leitast við að skapa tónlist fyrir börn sem fylgt er eftir af sama metnaði og ef um hljómsveit fyrir fullorðna væri að ræða.
|