„Það var sannkölluð síldarhleðsla á bátnum þennan dag þvi við fengum 6,3 tonn í lagnetin innan við brúna yfir Kolgrafafjörð,“ segir Páll Aðalsteinsson, skipstjóri og útgerðarmaður smábátsins Önnu Karínar frá Stykkishólmi en á þriðjudaginn gerði hann góða ferð í Kolgrafafjörð. „Þetta er ævintýri líkast þessi síldarganga þarna inn fyrir brúna. Við eru bara með sex net, þrjú í hvorri trossu og drögum þau til skiptis. Það var erfitt að ná þessu inn þegar svona mikið er í, sérstaklega síðustu trossunni sem var búin að liggja svolítið lengi því svo mikið var í þeirri næstu á undan. Líklega hafa verið tvö tonn í þessari trossu. Við drögum netin það oft þennan dag að það samsvaraði 24 netum. Það er langt í færunum á endabaujunum svo þær sökkvi ekki, en belgirnir, sem eiga að halda netunum uppi á milli þeirra, sukku vegna þyngslanna.“
|