Í gær kom stjórn og trúnaðarráð VLFA saman til að ræða forsendur kjarasamninga og hvort segja bæri upp kjarasamningum vegna forsendubrests. Vilhjálmur Birgisson formaður félagsins fór á fundinum yfir forsenduákvæði kjarasamninga á hinum almenna vinnumarkaði. Í máli hans kom fram að Samtök atvinnulífsins hefðu staðið við sitt en öðru máli gegndi með samkomulag sem gert var við ríkisstjórn Ísland samhliða kjarasamningum. Fram kom á fundinum að engu að síður væri það mat stjórnar og trúnaðarráðs VLFA að ekki væri grundvöllur fyrir því að segja upp kjarasamningum þó svo forsenduákvæði gagnvart ríkisstjórninni hefðu brostið, þar sem ekkert annað myndi gerast gagnvart íslenskum launþegum, ef kjarasamningum yrði sagt upp, en að launahækkanir sem koma eiga 1. febrúar verði hafðar af launafólki.
“Hver hefði trúað því að ríkisstjórn sem kennir sig við norræna velferð; félagshyggju, jöfnuð og réttlæti skyldi ráðast jafn illilega á kjör íslensks launafólks eins og núverandi stjórn hefur ítrekað gert frá því hún komst til valda,” segir m.a. í ályktun stjórnar og trúnaðarráðs VLFA.
|