Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða fækkaði gistinóttum í nóvembermánuði 2011 um 400 miðað við sama mánuð 2010. Þær voru nú 1400 samanborið við 1800 árið áður. Vestursvæðið var eina svæðið á landinu þar sem gistinóttum fækkaði þetta tímabil. Gistinóttum á hótelum í landinu fjölgaði í heild um 13%. Þær voru í nóvember 79.500 samanborið við 70.400 í nóvember 2010. Gistinætur útlendinga voru um 73% af heildarfjölda í nóvember en erlendum gestum fjölgaði um 19% samanborið við nóvember 2010 á meðan fjöldi gistinátta Íslendinga var svipaður á milli ára. Gistinætur á hótelum á Austurlandi voru ríflega 2.000 í nóvember og fjölgaði um 90% frá fyrra ári. Á Suðurnesjum voru gistinætur 4.300 í nóvember sem er 44% aukning frá fyrra ári. Gistinætur á hótelum höfuðborgarsvæðisins voru 62.000 eða 16% fleiri en í nóvember 2010. Á Norðurlandi voru 3.300 gistinætur í nóvember sem eru um 3% aukning frá fyrra ári.
|