Guðjón Þórðarson þjálfari BÍ/Bolungarvíkur tekur á móti sínu gamla félagi, ÍA, þegar Skagamenn heimsækja þá í 1. deild karla í knattspyrnu í kvöld. ÍA trónir nú í toppsæti deildarinnar með tíu stig eftir fjóra leiki en BÍ/Bolungarvík er í því sjötta með sex stig.
Rætt er við sóknarmanninn Stefán Þór Þórðarson á vefsíðu ÍA í dag og þar sagði hann leikinn á Ísafirði leggjast vel í sig. “BÍ / Bolungarvík er með sterkt lið og þeir verða erfiðir á heimavelli í sumar. En við ætlum okkur að vera klárir í leikinn og við munum leggja okkur alla fram um að verma toppsætið áfram,” segir Stefán Þór.
|