„How do you like Iceland?“ Útlendingar eru yfirleitt ekki búnir að dvelja lengi á Íslandi þegar þeir þurfa að svara þessari áleitnu spurningu og svör flestra eru yfirleitt diktuð upp af mikilli kurteisi og tillitssemi við spyrjandan en hafa sjaldnast mikið með raunverulega upplifun viðkomandi af landinu okkar góða að gera. Krystyna Jabuzewska hefur starfað náið með innflytjendum á Akranesi undanfarin þrjú ár á vegum Akranesdeildar Rauða kross Íslands. Í starfi hennar er í mörg horn að líta og sjaldan dauður tími en að hennar sögn felst starfið aðallega í því að aðstoða erlenda íbúa á Akranesi við það sem snýr að samskiptum við opinberar stofnanir; heibrigðisstofnanir, skóla, lögreglu og fleiri aðila þar sem pappírar þurfa að vera í lagi og mikilvægt að hlutirnir komist skýrt og skilmerkilega til skila á milli aðila.
Krystyna Jabluszewska er í viðtali í Skessuhorni vikunnar en hún hefur búið og starfað á Íslandi í 20 ár.
|